|
Double Yellow-headed Amazon Amazona ochrocephala oratrix
Lýsing: Gulhöfðinn er eins og Belís gulhöfðinn nema guli liturinn nær niður á háls, hliðar höfuðs og aftan á höfði; hnakkafjaðrir grænar með áberandi svartri brún, gular fjaðrir oft á milli og með rauðar brúnir í nokkrum fuglum; guli litur meiri í karlfuglum en kvenfuglum; bringa og kviður grænn og fjaðurbrúnir dökkar á næstum öllum fuglum; mjaðmir gular að innanverðu; vængbeygja rauð með gulum í bland.
Óþroskaðir fuglar með dökk augu; guli litur takmarkast við enni og hvirfil; vængbeygja græn.
Lengd: 38 cm.
Lífslíkur: 70-80 ára.
Um kynin: Enginn sjáanlegur útlitsmunur. Kyngreindir með DNA-aðferð.
Uppruni: Kyrrahafsströnd Mexíkó í Colima, vestur- hluta Michoacan og Guerrero.
Um fuglinn: Gulhöfða amasónar geta orðið frábærir talfuglar og hafa yndi af að læra heilu lögin utan að. Þeir eru ástúðlegir og vinalegir við flesta.
Hávaðasemi: Miðlungi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Í útrýmingarhættu.
Verð: Ótamdir 200.000 kr. Handmataður 310.000 kr.
|
|