|
Panama Yellow-fronted Amazon Amazona ochrocephala panamensis
Lýsing: Panama gultoppurinn er eins og gultoppurinn nema guli liturinn er eingöngu á enni og fremst á hvirfli; svæðið umhverfis augun er grænt; aftari hluti hvirfils með bláum bjarma; mjaðmir grænar en gulleitar á nokkrum fuglum; goggur ljós; smærri.
Lengd: 35 cm.
Lífslíkur: 70-80 ár.
Um kynin: Kynin eru eins útlítandi. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: N-Kólombía til V-Panama; Archipelago de las Perlas á skurðavæðinu og á Coiba.
Um fuglinn: Panama gultoppurinn getur orðið ágætur talfugl og hefur yndi af að læra heilu lögin utan að. Þeir eru blíðir og vinalegir við flesta en geta orðið frekir ef þeir komast upp með það.
Hávaðasemi: Talar og syngur mikið.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Í útrýmingarhættu.
|
|