toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Buffon’s Macaw

Buffon’s Macaw (Great Green Macaw)
Ara ambigua ambigua

Lýsing: Aðallitur gulgrænn; enni og fjaðurrákir um nefsvæði rauðar; hvítt bersvæði með svartar fjaðurrákir yfir kinnar; fuglinn roðnar á bersvæðinu þegar hann æsist; fjaðrir umhverfis bersvæði kinna og höku svarbrúnar; neðra bak, lendar og undirvængsblöðkur fölbláar; efri hlið ytri aðalflugfjaðra og aðalvængblaðka bláar; efri hlið stéls föl rauðbrún með fölbláum endum; undirhlið stéls og flugfjaðra olivíugul; kraftmikill goggur svartleitur með fölum endum; neðri goggur 13-15 mm breiður, augu ljósgulleit; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar með daufari fjaðrir; miðstélfjaðrir með gulum endum; brún augu.

Lengd: 85 cm.

Lífslíkur: 80-100 ár.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. Karlar ögn stærri og hnakkafjaðrirnar með fölbláum blæ.

Uppruni: Baudófjöll í vesturhluta Kólombíu norður um Panama og Kosta ríka til Nikaragúa.

Um fuglinn: Buffon arinn er frekar feiminn að eðlisfari en venst fljótt eigandanum. Hann nagar mjög mikið og þarf þykkar trjágreinar handa honum. Hann er harðger fugl eftir að hann aðlagast búrlífi. Honum semur vel við aðra ara utan fengitíma og hefur unun af að baða sig og vera úti í rigningu.

Hávaðasemi: Fremur hljóðlátur miðað við ara.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og veiða.

greatgreen

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Ara ambigua guayaquilensis

botn