|
Yellow-lored Amazon Amazona xantholora
Lýsing: Fuglinn er að mestu grænn með áberandi svartri brún á fjöðrunum; enni og fremri hluti hvirfils hvítur en rjómalitur á sumum; nefsvæði gult; augnsvæði, alula vænglingur (ekki á öllum fuglum) og aðalvængblöðkur rauðar; hvirfill daufblár og fjaðrir með svartri brún; eyrnablöðkur svartleitar; aðalvængfjaðrir og ysti gluti aukaflugfjaðra blár; efri og neðri stélblöðkur gulgrænar; efri hluti stéls grænn með grængulum endum; stélrót og ytri stélfjaðrir rauðar; augnhringur gul-ljósletur; augu brún; fætur brúnir.
Óþroskaðir fuglar með daufblátt enni; rautt í vængjum ungra karlfugla en yfirleitt mikið grænt í ungum kvenfuglum; dökk augu.
Lengd: 26 cm.
Lífslíkur: 40-50 ár.
Um kynin: Kynjamunur lítill. Kvenfugl líkist karlfugli nema hvíti liturinn á enni og fremri hluti hvirfils er minni; aðalflugblöðkur og alula-vænglingur yfirleitt grænn, á sumum kvenfuglum eru aðalvængblöðkur rauðar en aldrei alula-vænglingurinn.
Uppruni: Suðaustur Mexíkó á Yuacatan skaga og Cozumel eyju; Belís, Roatan eyja, Hondúras.
Um fuglinn: Ákveðinn en ljúfur fugl. Mikill nagari og þarf alltaf að hafa eitthvað að naga. Þykir gaman að baða sig. Verður harðger með aldrinum.
Hávaðasemi: Frekar hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z
Staða í dag: CITIES II. Nokkuð algengur.
|
|