|
Yellow-collared Macaw (Yellow-naped Macaw) Ara auricollis
Lýsing: Aðallitur grænn; enni, hvirfill og kinnar brúnsvartar; vottar fyrir bláum blæ í hnakkafjöðrum; gult band yfir hnakka; aðalflugfjaðrir og aðalvængblöðkur bláar; ytri hluti aukaflugfjaðra og stærri vængblöðkur með bláum blæ; undir- vængblöðkur olívíugular; efri hlið stélfjaðra rauðbrún með bláum endum, undirhlið olívíugul; goggur svartur með ljósum enda; hvítt bersvæði yfir kinnar; augu appelsínugul; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar með mjórra hnakkaband; gogg- endinn ljósari.
Lengd: 38 cm.
Lífslíkur: 60 árum.
Um kynin: Lítill útlitsmunur. Kvenfuglar að jafnaði smærri.
Uppruni: Norðurhluti Goi’s og norðausturhluti Mato Grosso í Mið-Brasilía og einnig norður og austurhluti Bólivíu, suðvestur Mato Grosso þvert yfir Norður-Paragvæ til Jujuy og Salta héraða í norðvesturhluta Argentínu.
Um fuglinn: Líflegur og forvitinn. Yfirleitt ekki hlédrægur. Verður fljótt hændur eigandanum. Handaldir fuglar yfirleitt hljóðlátir og þægilegir. Harðgerðir eftir að þeir aðlagast búrlífi. Þurfa ekki mikla böðun. Naga mikið og þurfa ferskar greinar. Geta verið með öðrum hópfuglum jafnvel yfir fengitímann.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur vegna þess hversu aðlögunargóður hann er.
|
|