toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Vinaceous Amazon

Vinaceous Amazon
Amazona vinacea

Lýsing: Almennt grænn á lit; nefsvæði og mjótt band yfir enni rautt; háls-, bringu- og kviðfjaðrir purpura- vínrauðar; hnakki með bláum blæ; höfuð-, bringu-, bak- og sumar kviðfjaðrir með svartri brún; vængbrún með mismikið af rauðum eða gulum fjöðrum; aðalflugfjaðrir grænar með bláum endum; ytri aukaflugfjaðrir með rauðum ferningi; neðra bak fölgrænt; undirstélsblöðkur fölgulgrænar; undirvæng- blöðkur og undirhlið flugfjaðra grænleit; efri hluti stéls grænn með gulgrænum endum; ytri stélfjaðrir rauðar í rót; augnhringur grár; goggur daufrauður og ljósan brodd; augu rauð; fætur gráir.

Lengd: 30 cm.

Lífslíkur: 60-70 ár.

Um kynin: Engin útlitsmismunur er á kynjunum.

Uppruni: Norðaustur-Argentína í Misiones hérað; suðausturhluti Paragvæ og suðausturhluti Brasilíu í suðurpart Bahia og norðurpart Rio Grand Do Sul.

Um fuglinn: Getur orðið fínn talfugl og hefur yndi af að læra. Þeir eru varkárir og lengio að treysta fólki. Geta orðið árásargjarnir á fengitímanum.

Hávaðasemi: Miðlungi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z

Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og veiða.

amazona_vinacea

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn