toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Tucumán Amazon

amazona-tucumana

Tucumán Amazon
Amazona tucumana

Lýsing: Fuglinn er að mestu grænn; allar fjaðrir með áberandi svartri brún nema á vængjum; enni, fremri hluti hvirfils og aðalfugblöðkur rauðar; mjaðmir að hluta til appelsínugul-gular; aðalflugfjaðrir grænar með bláum endum; ytri aukaflugfjaðrir bláar að utanverðu; efri- og undirstélsblöðkur gulgrænar; undirvængsblöðkur grænar; undirhlið vængja olívu- græn; efri hluti stéls grænn með gulgrænum endum; augnhringur hvítleitur; goggur ljósleitur; augu appelsínugul-gul; fætur brúngráir.

Lengd: 25 cm.

Lífslíkur: 40-50 ár.

Um kynin: Kynjamunur lítill. Kvenfugl líkist karlfugli nema hvíti liturinn á enni og fremri hluti hvirfils er minni; aðalflugblöðkur og alula-vænglingur yfirleitt grænn, á sumum kvenfuglum eru aðalvængblöðkur rauðar en aldrei alula-vænglingurinn.

Uppruni: Tucumán, Salta og Jujuy hérað í Argentínu, og Chuquisaca og Tarija hérað í SA-Bólivíu.

Um fuglinn: Ákveðinn en ljúfur fugl. Mikill nagari og þarf alltaf að hafa eitthvað að naga. Þykir gaman að baða sig. Verður harðger með aldrinum.

Hávaðasemi: Frekar hávaðasamur.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z

Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og veiða.

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn