|
Socorro Green Conure Aratinga holochlora brevipes
Lýsing: Eins og A. h. holochlora en dekkri og minna gular fjaðrir á bringu og kvið: tíunda flugfjöðrin er styttri en sú sjöunda en öfugt gildir hjá öðrum undirafbrigðum; stél að jafnaði 2 cm lengra.
Óþroskaðir fuglar oft án bláa höfuðlitarins; á sumum er ennið blátt; neðri goggur ljós.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Socorro-eyja út af vesturströnd Mexíkó.
Um fuglinn: Hann er mikill nagari og þarf nóg af ferskum greinum. Hefur gaman af að baða sig. Oft frekar feiminn og venst eigandanum hægt. Harðgerður og kraftmikill eftir aðlögunartímann. Getur verið með öðrum tegundum af svipaðri stærð utan varptíma.
Hávaðasemi: Hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Á undanhaldi vegna skógareyðingar. Stofnstærð 400-500 pör.
|
|