toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Scarlet Macaw

Scarlet Macaw
Ara macao

Lýsing: Aðallitur skærrauður; hvítt bersvæði við augu og kinnar og vart sjáanlegar fölrauðar fjaðurrákir á þvers og kruss; hnakkafjaðrir sumra fugla með gulleitri brún; aðal- og miðvængblöðkur gular með grænni brún; ytri hluti vængfjaðra blár; neðra bak, lendar, efri og neðri stélblöðkur fölbláar; efri hlið stéls rauð með fölbláum endum; undirhlið stéls og vængja rauð; kraftmikill ljós efri goggur með dökkar hliðar; neðri goggur svartleitur; augu ljósgulleit; fætur dökkgráir.

Lengd: 85 cm.

Lífslíkur: Allt að 100 árum.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. Karlar ögn stærri.

Uppruni: A-Panama norður yfir Mið-Ameríku til suðurhluta Tamaulipas og Oaxaca héraða í Mexíkó, og frá norðausturhluta Kólombíu í Magdalenadal austan Andesfjalla í A-Kólombíu, Venesúela, Gvæjana, Súrínam, Frönsku Gvæjana og suður yfir Ejvador, Perú, Brasilíu til Mato Grosso héraðs og Santa Cruz í Bólivíu.

Um fuglinn: Skarlatrauði arnpáfinn er líflegur og hugaður, forvitinn og skemmtilegur.  Hann nagar mikið og þarf þykkar trjágreinar handa honum.  Hann er harðger fugl. Honum semur vel við minni fugla utan fengitíma og unir sér vel með fuglum af sinni tegund á fengitíma.

Hávaðasemi: Hávaðasamur.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Lifir enn villtur en fer óðum fækkandi.

Verð: Ótaminn 450.000 kr. Handmataður 690.000 kr.

scarlet-macaw

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn