|
Red-breasted Lory Lorius lory erythrothorax
Lýsing: Eins og L. lory lory en neðribringa líka rauð; blái kviðliturinn nær ekki til hliðanna; hnakkabandið mjórra.
Lengd: 31 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kynin eru eins útlítandi og þarf DNA-próf til að greina kynið.
Uppruni: Suðausturhluti Nýju-Gíneu, vestur til Huon skaga í norðri og Purari fljóts í suðri.
Um fuglinn: Þessi hunagspáfi er mjög leikglaður og hvikur og ekki of hávær. Hann hefur gaman að blístri, smelluhljóðum og hvæsi. Hann er mjög greindur og forvitinn og sérlega athafnasamur. Þarf að hafa nóg fyrir stafni. Fljótur að aðlagast eiganda. Vill ferskar greinar og kalksteina.
Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.
Fóðrun: Fjölbreytt úrval af ávöxtum og grænmeti. Þarf einnig að fá blómasafa (nektar) og mikið af hreinum ávaxtasafa. Étur stundum fuglakorn og eggjafóður með. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|