|
Puerto Rican Amazon Amazona vittata vittata
Lýsing: Almennt grænn; bringa og kviður meira gulgrænn; höfuð-, bringu-, hnakka-, bak- og sumar kviðfjaðrir með svartri brún; enni og nefsvæði rautt; kviður sumra með rauðum blæ; aðalvængblöðkur og aðalflugfjaðrir dökkbláar; ytri hluti ystu aukaflugfjaðra með grænni brún; undirstélblöðkur gulgrænar; undir- vængblöðkur grænar; undirhlið flugfjaðra blágræn; efri hlið stélfjaðra græn með gulgrænum endum; ytri stélfjaðrir rauðar í rót; ystu stélfjaðrir með blárri brún; augnhringur hvítur; goggur ljós; augu brún; fætur bleikleitir.
Óþroskaðir fuglar eru fölari í litum og ennið minna rautt; efri goggur grár við rót; augu dökk.
Lengd: 29 cm.
Lífslíkur: 40-50 ár.
Um kynin: Kynin eru eins útlítandi. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Púertó ríkó; áður hugsanlega einnig á Vieques-eyju.
Um fuglinn: Nokkuð harðger fugl. Er viðkvæmur fyrir sýkingum fyrst í stað. Nagar mikið og þarf því mikið af greinum.
Hávaðasemi: Getur verið hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Finnst varla lengur í náttúrunni, kannski 40-50 fuglar. US Fish and Wildlife Service í Púertó ríkó og Patuxent rannsóknarstöðin í Maryland í Bandaríkjunum rækta fuglinn. Árið 1975 voru aðeins til 13 villtir fuglar. Núna eru einnig um 90 fuglar annars staðar í heiminum.
|
|