toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Neumann's Macaw

Neumann’s Macaw
Ara nobilis longipennis

Lýsing: Eins og A. n. cumanensis nema stærri.

Lengd: 35 cm.

Lífslíkur: 40 ár.

Um kynin: Óverulegur munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.

Uppruni: Brasilía í héruðunum Goias, Mato Grosso, Saó Paulo og Espirito Santo.

Um fuglinn: Þetta er með minni arnpáfum í ættinni. Hann er auðveldari í umhirðu en margir ættingjar hans. Þetta er bráðgáfaður fugl og því auðtaminn, skemmtilegur, félagslyndur og fyndinn. Einstakur fugl getur verið hávær, en flestir láta í sig heyra kvöld og morgna eins og aðrir páfagaukar. Þeir eru þó ekki eins háværir og stóru arnpáfarnir og því góður valkostur. Þetta eru ekki bestur talfuglarnir en sumir verða góðir talarar. Hansarinn binst eiganda sínum fljótt sterkum böndum og skemmtir honum tímunum saman með látbragði sínu og ærslum.

Hávaðasemi: Í meðallagi fyrir dvergara. Einstaka fugl gargar mikið.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.

longipennis

Undirafbrigði:
Ara nobilis nobilis
Ara nobilis cumanensis

botn