toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Matthew’s Pink Cockatoo

Matthew’s Pink Cockatoo (Leadbeater’s Cockatoo)
Cacatua leadbeateri mollis

Lýsing: Eins og C. l. leadbeateri nema kamburinn rauðari; gula bandið mjög dauft eða vantar alveg.

Lengd: 35 cm.

Lífslíkur: 60 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en kviður hvítur og án gula bandsins í kambi eða þá að það vottar aðeins fyrir því; augu rauð.

Uppruni: Þekkist aðeins frá Warburton Mission og Carnamah hérað í Vestur-Ástralíu.

Um fuglinn: Fallegur og tignarlegur fugl sem þykir gaman að sýna sig. Hann er félagslyndur, ljúfur og athafnasamur. Þarf nóg að naga, enda goggurinn sterkur. Mjög harðgerður eftir aðlögunartíma. Henta yfirleitt ekki með öðrum kakadúum. Oft frekar hlédrægur. Þarf oft að ormahreinsa þar eð hann er mikið á jörðinni.

Hávaðasemi: Nokkuð hávær, einkum á morgnana.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Fer fækkandi.

Cockatoo_Major_Mitchell_s

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Cacatua leadbeateri leadbeateri

botn