|
Lilacine Amazon Amazona autumnalis lilacina
Lýsing: Eins og rauðennti amasóninn en rauði ennisliturinn daufari; hvirfilfjaðrir lillagrænar með daufrauðum brúnum; kinnar gulgrænar; goggur grár.
Óþroskaðir fuglar bara með rautt enni; goggur ljós og grár í endanum; augu dökk.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 60-70 ár.
Um kynin: Útlitsmunur lítill sem enginn. DNA-grein- ingar þörf.
Uppruni: V-Ekvador, blandast A. salvini í suðvestur- horni Kólombíu.
Um fuglinn: Ákveðinn en ljúfur fugl. Mikill nagari og þarf alltaf að hafa eitthvað að naga. Þykir gaman að baða sig. Verður harðger með aldrinum.
Hávaðasemi: Frekar hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
|
|