toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Finsch’s Conure

Finsch’s Conure (Crimson-fronted Conure)
Aratinga finschi

Lýsing: Almenn litur grænn; neðri hluti bringu og kviður gulgrænn; enni, nefsvæði og fremri hluti hvirfils rauður (rauði liturinn nær ekki til augna); vængbeygja og -brúnir og ytri undirvængblöðkur rauðar; undirhlið flugfjaðra og stéls olivíugular; augnhringur hvítleitur, goggur ljós; augu rauðappelsínugul; fætur holdlitaðir-gráir.

Óþroskaðir fuglar án rauðs ennis; augu dökk.

Lengd: 28 cm.

Lífslíkur: 30-40 ár.

Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.

Uppruni: Suðurhluti Nikaragúa, austurhluti Kostaríka og vesturhluti Panama.

Um fuglinn: Leikglaður og félagslyndur fugl. Þeir eru yfirleitt ekki góðir talfuglar en ófeimnir og forvitnir. Naga ekki mikið og hafa gaman af að baða sig. Geta umgengist aðrar tegundir utan varptíma.

Hávaðasemi: Í meðallagi, en getur verið hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

finschi

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn