|
Citron-crested Cockatoo Cacatua sulphurea citrinocristata
Lýsing: Eins og C. s. sulphurea nema með appel- sínugular eyrnafjaðrir og kamb; stærri.
Óþroskaðir fuglar með ljósari fætur og gogg; augu dökk hjá báðum kynjum; ungir kvenfuglar fá fullorðinsaugnlit oft við 12 mánaða aldur.
Lengd: 38 cm.
Lífslíkur: 50-60 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlarnir en augu rauð og goggur yfirleitt smærri.
Uppruni: Sumba-eyja, Indónesíu.
Um fuglinn: Fallegur og tígullegur fugl. Mikill nagfugl. Getur nagað sundur vír. Þarf því að fá nóg til að naga. getur farið að reita sig ef honum leiðist. Harðgerður eftir aðlögunartíma og fljótur að venjast eigandanum.
Hávaðasemi: Oft hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í nokkurri útrýmingarhættu.
|
|