toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Blue-cheeked Rosella

Blue-cheeked Rosella
Platycercus adscitus adscitus

Lýsing: Hvirfill, hnakki og eyrnablöðkur fölgular; efri kinnar og nefsvæði hvítt; neðri kinnar og undirvængblöðkur bláfjólubláar; efri bringa fölgul og með bláum flekkjum á mörgum fuglum; neðri bringa og kviður fölblár og síðan blágrænn með gult til hliðanna; bringa og kviðfjaðrir með fínndökkri brún; hnakki, bak og axlarfjaðrir svartar með breiðgulri brún og síðan föl blágrænar á öxlum; innri miðvængblöðkur svartar, vængbeygja og ytri miðvængblöðkur föl-bláfjólubláar; aukavængblöðkur fölbláar; aukaflugfjaðrir, ytri hluti aðalflugfjaðra og aðalvængblöðkur sterk bláfjólubláar; neðra bak grænblátt og síðan blágult á efri stélblöðkum og með fínni dökkri brún; undirstélblöðkur rauðar; efri hlið miðstélfjaðra dökk kopargræn og dökkblá í endunum; yrti stélfjaðrir fölbláar og dökkbláa rót og fölum endum; undirhlið stéls fölblá; goggur ljós gráleitur; mjór og grár augnhringur; augu dökkbrún; fætur dökkgráir.

Óþroskaðir fuglar eins og fullorðnir, en fjaðrir daufari, oft nokkrar gráar og rauðar fjaðrir á höfði; daufara undirvængband; fær fullorðinsham 16 mánaða gamall.

Lengd: 30 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kvenfuglinn er að jafnaði minni og með hvítleitt undirvængband.

Uppruni: Cape York Peninsular, Queensland, Ástralía; blandast P. a. palliceps á Atherton Tableland fjalla- svæðinu.

Um fuglinn: Þetta er athafnasamur og hrekklaus fugl en svolítið skapmikill. Er viðkvæmari en aðrar rósellur. Hann verður harðger þegar hann aðlagast nýjum aðstæðum. Hann getur ekki  verið með öðrum fuglum. Hefur gaman af að baða sig og nagar mikið og þarf því gott framboð af greinum. Hefur einnig gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun.

Hávaðasemi:  Miðlungs hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.

PaleHeadedRosella

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Platycercus adscitus palliceps

botn