|
Blue-cheeked Amazon Amazona dufresniana dufresniana
Kynin: Grænn; hnakka- og bakfjaðrir með svartri brún; enni og nefsvæði gulappelsínugult; hvirfil- og hnakkafjaðrir gular með breiðri blárri brún; kinnar, eyrnafjaðrir og hnakkahliðar bláfjólubláar; vængbrúnir gulgrænar; fyrstu fimm aukaflugfjaðrir með gulappelsínugulum ferningi; stél grænt með grængulum endum; innrihluti ytri stélfjaðra appelínugulur; augnhringur grár; goggur grár-ljósleitur; augu rauðappelsínugul; fætur gráir.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 60-70 ára.
Um kynin: Útlitsmunur lítill sem enginn. DNA-grein- ingar þörf.
Uppruni: Franska Gvæjana, Gvæjana, Súrínam og Gran Sabana hérað í suðaustur Bolivar, Venesúela.
Um fuglinn: Harðger og hress fugl. Getur verið viðkvæmur fyrir sýkingum fyrst í stað. Nagar lítið en nýtur þess að fara í bað.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar sjaldgæfur.
|
|